-=*ég er folihhhh ;)*=-

eLíSa folih ;)

30.08.2007 08:52:06 / folih

-*fleh*-

Jæja... í tilefni þess hvað það er langt síðan ég hef bloggað hef ég ákveðið að skella hérna inn smá fréttum! :P

Sumarið er að verða búið :S Skólinn að byrja mán sem reyndar er fínt :) Er að bíða eftir að fá útborgað til að geta farið og keypt bækurnar. Býst reyndar fastlega við því að fara á hausinn eftir þá verslunarferð :S Sem betur fer á pening frá því sumar til að fara með til köben... veit ekki hvað ég myndi gera annars!

En það einmitt styttist alltaf og styttist í köbenferðina :) ekki nema 25 dagar *vúhú*

Ma&pa að fara út eftir viku í rúmar 2 vikur, ekki slæmt það :) Hefði samt ekkert á móti því að skella mér með þeim í siglingu á Miðjarðarhafið og afslöppun á Mallorca.

Við Ella vorum nú samt næstum því búnar að skella okkur til Mallorca seinasta mánudag! Fékk sent tilboð á föstudeginum og svo þegar við ætluðum að fara að panta seinnipartinn þá var upppantað :S Okkur sem langaði svo aðeins í sólina! En við fórum bara í ljós í staðin :P

Ég er komin með vinnu í vetur :) Farin að vinna á kvöldin í söluverinu hjá Glitni, svaka fínt djobb og vel borgað :) Verð svo kannski eikkað aðeins hjá Sjóvá líka!

 Svo er ég byrjuð í ræktinni aftur eftir alltof langt hlé! Ætla að vera ennþá duglegri en seinasta vetur! og hananú!! :)

Held ég láti þetta duga í bili... ætli ég bloggi ekki næst eikkutíman þegar ég kem heim frá köben... svona miðað við fyrri færslur :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 15:49:10 / folih

...

  • Þjóðhátíð var GEÐVEIK!!
  • Þjóðhátíð 2008 er klárlega málið - hús og bíll og allur pakkinn!
  • myndir væntanlegar hjá Sigrúnu og Birgittu
  • 2 dagar í djammferð norður á Dalvík á fiskidaginn...
  • 14 dagar í fjandans stærðfræðiprófið :S
  • Sem þýðir að ég þarf að fara að vera dugleg að læra!
  • 23 dagar í að ég hætti að vinna.
  • Þannig mig vantar vinnu fyrir veturinn... anyone?
  • 26 dagar í að skólinn byrji...
  • díj hvað sumarið er búið að líða alltof hratt
  • en búið að vera ekkert smá skemmtilegt sumar samt! :)
  • 47 dagar í KÖBEN!!!
  • segjum þetta nóg í bili... þið vitið allaveganna að ég er á lífi... :P

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 09:14:21 / folih

...

Jæja... ekki nema þrír dagar í Þjóðhátíð!! :)

Úff hvað þetta er búið að vera fljótt að líða... vonandi verður tíminn fram að köben líka svona fljótur að líða :)

Klikkaða þríeykið skellti sér í gær að kaupa miða í dalinn... svona áður en forsölunni myndi ljúka. Fengum reyndar áður þennan dýrindis kjúlla hjá Birgittu ala Jamie :)

Svo er alveg hellingur sem þarf að klárast á þessum þrem dögum sem við höfum til stefnu, samt eila bara tveim því það er ekki útborgun fyrr en á morgun og lítið hægt að gera þangað til nema kannski pakka aðeins! Þarf að fara að kaupa mér pollabuxur því það lítur allt út fyrir það að það verði mikil þörf fyrir þær í eyjum... þó svo að foreldrar mínir vilji ólmir senda mig með KRAFTGALLA! Birgitta var frekar hneyksluð "þú ætlar greinilega ekki að gana út um helgina..." En það er víst aðalmissjonið hjá þeim birgittu og ellu því mamma hennar ellu vill endilega að þær fari að finna sér kærasta ;)

Úff... svo er það ríkið! Var að reikna áðan verðið... ég held ég fari á hausinn eftir þessa ferð :S Smá problem reyndar hvernig mahr á að koma öllum þessum farangri til eyja.... Stelpurnar ætla allaveganna að vera nettar á því og mæta með flugfreyjutöskur ;) Æj þetta hlýtur einhvernvegin að reddast! En það verður alveg klárlega bíll og íbúð með í för á næsta ári... það er bara alveg þannig!!

Steinunn ætlar að vera svo yndisleg að keyra okkur og sækja til Þorlákshafnar! Sem er virkilega mikil góðmennska þar sem við komum heim um miðja nótt, aðfaranótt þriðjudags! Úff hvað sumir verða ferskir í vinnunni á þriðjudaginn ;)

Svo er það bara Fiskidagurinn eftir það! Skiljið eftir komment ef þið viljið eiginhandaráritun frá Opruh ;) Þar verðum víst á aðal partýj svæðinu því það eru víst 35 manns að fara að tjalda í garðinum í Bárugötunni ;) Efast svo ekki um að það verði vel passað upp á okkur af minni elskulegu systir og frænkum! :P

Kannski mahr komi því að hva mahr var svaka stilltur og rólegur síðustu helgi ;) Sat heima alla helgina að læra og horfa á friends! Var að passa mæjpæj en er nokkuð viss um að hún hafi verið skilin eftir til að passa mig ;) Held samt að það hafi ekki verið vitlaust að taka pásu fyrir stærstu helgi ársins ;)

Well... kannski mahr fari að vinna aftur! Ætla rétt að vona að það lesi þetta einhver, annars var þetta tóm sóun á dýrmætum tíma :S

p.s. hverjir eru að fara á Þjóðhátíð?


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 08:38:44 / folih

úff...blogg!

Jæja... í fréttum er þetta helst... :P

 Húsafellsútilegan endaði í Hellishólum, eftir 4ra tíma rúnt í leit af tjaldstæði þar sem 5 "barnlaus ungemnni" máttu tjalda :P Og það var sko hægara sagt en gert! Kommon við erum nú ekki 15 lengur :P Sem kom vel í ljós þegar við vorum farin að sofa kl. 3 um nóttina þar sem við vorum ekki alveg að fitta inn í unglingahópinn!! En við skemmtum okkur samt klárlega geggjað vel :) Fjandi góð upphitun líka þar sem það var orðið soldið langt síðan mahr fór í útilegu ;) Komst allaveganna að því að það er víst gott að hafa með sér úlpu þó það sé gott veður yfir daginn því það getur kólnað aðeins á nóttunni... sérstaklega í sveitinni ;) Birgitta nýtti sér tækifærið og gerði óspart grín að fallega fjölskyldutjaldinu sem Fjalla-Eyvindur átti og móðir mín fékk svo í fermingargjöf ;)

Seinasta helgi var svo algör snilld ;) HALLGEIRSEY 2007! Ætluðum að vera mættar snemma á staðin en það dróst aðeins þar sem það þurfti að stoppa í hverju bæjarfélagi á leiðinni - hveragerði; bónus - selfoss; bensín - hvolsvöllur; borða ;) Seinasti vegakaflinn var svo ekki upp á sitt besta... beið nú bara eftir að hann mundi rífa allt undan bílgreyinu mínu... nýja pústið og allt :S Endað magnið af farangri ekkert lítið... og áfengi er víst ekkert létt ;) Fengum svo hjálp við að tjalda nýja fína tjaldinu okkar úr húsó frá honum magga.... hann er alltaf jafn indæll þessi elska ;) Föstudagskvöldið var svo tekið með trompi... stungið af út á tún með tópas flöskuna og farið hamförum í kollhnísaæfingunum frá "den" ;) Amigo þríeykið var skomm klárlega að gera sig... algjörlega keppnis!! :) Komst líka að því að það er ekki gáfulegt að vera í hvítu í útilegu þar sem ég flaug tvisvar "pent" á hausinn ;) Það þarf vart að segja frá því að fötin komu svört heim! :S Komst líka að því að þó það standi að tjald sé 4ra manna þá þarf það ekki endilega að vera rétt því það var gjörsamlega ólíft í tjaldinu okkar!! Laugardagurinn sjálfur fór svo mestmegnis í þynnku, sund og sof ;) Fórum á fætur svo rétt eftir kvöldmat og þá var byrjað að sturta í sig aftur. Mahr var nú aðeins rólegri á laugardagskvöldið... en það var alveg sama snilldin... hreinlega OF gaman :) Á sunnudeginum var svo vaknað, grillaður djúsíj börger og lagt sig svo aftur við ekki miklar vinsældir steinunnar! En ég segi nú bara sem betur fer því við vorum varla lagðar af stað þegar löggan stoppar mig og lætur mig plása... en auðvitað var mín alveg edrú :)

En það eru komnar snilldar myndir frá helginni bæði frá Birgittu og Sigrúnu... myndir segja oft meira en mörg orð!! ;)

Næsta helgi er ennþá í mótun... býst samt við að hún verði frekar róleg þar sem mahr er orðin frekar blankur :S

Svo styttist bara í Eyjar... ÞJÓÐHÁTÍÐ 2007! Það verður klárlega snilldin ein!!

Svo er búið að ákveða líka að fara á Fiskidaginn á Dalvík helgina eftir Eyjar... alltaf sama stuðið þar ;)

Svo er víst próf hjá mér 22. ágúst... styttist ískyggilega hratt í það sem þýðir ég ætti víst að fara að byrja að læra!! Hljómar bara miklu betur að fara heim og leggja sig eftir vinnu en að fara að grúska í skólabókum...

Ætli ég láti þetta ekki duga af fréttum í bili...

Þangað til næst (sem guð má vita hvenær verður...)

eLíSa folih!


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 10:38:02 / folih

FLEH

Kannski ég bloggi svona að því tilefni að enginn les bloggið mitt...

Ég er ekki frá því að sumarið sé loksins komið! Held allaveganna að ég hafi fengið sólsting í gær... svaf allaveganna yfir mig í morgun :S Það er svona þegar enginn er á heimilinu til að vekja mann! Þannig mig vantar eikkurn til að lúlla hjá mér og sjá um að vekja mig næstu daga...

Seinasta helgi var æðisleg :) Var róleg á fös reyndar og kíkti aðeins í heimsókn til Birgittu. Henti soo ma&pa á völlinn á laugardagsmorguninn og svo var æðislegt partýj og svaka djamm á lau. Ákveðnar bloggsíður voru mikið ræddar eins og venjan er og ófróðir aðilar fræddir um það sem þar fer fram! :P

Svo þarf náttla ekki að ræða það... að það er alveg að koma aftur helgi! Og það ekkert venjuleg helgi.... ÚTBORGUNARHELGI ;) Planið er svo að skella sér á föstudaginn, eina nótt í Húsafell í góðra vina hópi! :)

Það hefur verið tekin ákvörðun um að þetta á að vera sumarið þar sem eitthvað verður gert!! Allaveganna þrjár útilegur komnar... vonandi meira í vændum :)

Sem minnir mig á það að það er rúmlega vika í stærsta djamm ársins, HALLGEIRSEY! úff hvað það verður gaman!! :) Tók mig einmitt til í gær og prentaði út sögnbókina svo ég geti verið búin að æfa mig aðeins áður, og svo verður náttla nóg af söngvatni með í för :)

Og svoo styttist alltaf í Eyjar, ÞJÓÐHÁTÍÐ.... HERE I COME!!!

Nýja vinnan er alveg að gera sig! Finnst hún æðisleg! Skil ekki hvernig ég entist svona lengi í bónus... 6 ár! Æðislegt að vera alltaf búin 4, hálf 5 og geta nýtt daginn eitthvað! Og frí um helgar... það bara gerist ekki betra :)

Búin að komast reyndar að því að ég er MYSPACE FÍKILL, svo endilega sendið mér skilaboð eða comment or some því þá verð ég svo glöð :) www.myspace.com/folih

En ég held ég ætti kannski að koma mér í að fara að vinna ;)

Ef ÞÚ slysast til að lesa þetta skemmtilega blogg mitt... KVITTAÐU FYRIR ÞIG!!!

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 13:34:55 / folih

blogg?

Spörning um að blogga kannski eitthvað smávegis fyrir ykkur dyggu aðdáendur (leyfið mér að lifa í voninni ;))

Get nú ekki sagt að ég hafi eitthvað merkilegt að segja samt...

Er búin að vera alltof ódugleg í ræktinni núna eftir próf :S gengur eikka illa hjá mér að vakna á morgnanna og svoo eftir vinnu þarf mahr alltaf að stússast eikka... Óska hér með eftir buddy til að mæta memmér á morgnanna kl. 6 ??? Sigrún... ég veit að þú ert með kort í Hreyfingu... joina?

Styttist í helgina... mér finnst alltaf vera helgi! Sem þýðir greinilega bara eitt... tíminn líður allt og hratt og áður en mahr veit af verður sumarið búið og skólinn kominn á fullt! En það þýðir líka að tíminn verður fljótari að líða fram að Hallgeirsey og von bráðar verð ég syngjandi og drekkandi bjór í góðra vina hópi fyrir framan appelsínugult tjald ;) Og um leið og skólinn verður byrjaður styttist í Köben babýj! Erum að klára að leggja lokahönd á ferðina... á bara eftir að panta hótelið og það verður gert bara núna á næstu dögum :)

Þessi helgi eins og fleiri mun einkennast af drykkju og þynnku :P Ásamt því að skjótast til Keflavíkur til að ná í Stóníj sem er að koma aftur heim :) Kom heim fyrir viku síðan, færandi hendi með fallega pakka og úttroðnar tvær ferðatöskur... takk fyrir mig elskan :*

Eigum við ekki að segja þetta gott í bili... held að það sé kominn tími á að fara að vinna eitthvað af viti ;)

 p.s. Les þetta einhver... svona í alvörunni??!


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 11:46:41 / folih

æj fleh

Jæja... hvað segir fólkið? Er ekki kominn tími á smá blogg? ;)

Þá er sumarið loksins komið eftir langa bið, allaveganna samkvæmt dagatalinu... er farin að halda að veðurguðirnir séu ekki á alveg sama máli! En það hlýtur að fara að koma :)

Skólinn er sem sagt búin og prófin gengu bara mjög vel :) náði öllu og bara mjög ánægð með einkunnirnar :)

Eftir prófin skellti ég mér í klippingu og klippti á mig topp :) Veit ekki alveg hvað ég á að gera við hann... er að spá í að safna honum bara aftur... eða hvað segið þið?

Soo er mahr kominn í svaka fansíj skrifstofujobb hjá Sjóvá :) Alveg að fíla það skomm...

Sumarið á náttla bara eftir að vera frábært... djamm og aftur djamm :)

Hallgerisey fyrstu helgina í júlí og eitthvað um verslunarmannahelgina, ekki enn ákveðið hvert samt...

Skvísuferð til köben í sept og bara allt að gerast...

en æj ég nenni eila ekki að blogga... ákvað bara að henda smá inn :P

fleh


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 12:08:57 / folih

loksins...

ÉG ER BÚIN Í PRÓFUM!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 11:46:26 / folih

fleh

Jæja... eftir langa bið er ég loksins hálfnuð í prófum, og meira að segja rúmlega það þar sem það er eila ekki hægt að vera hálfnaður þegar mahr er í 5 prófum! Gekk bara ágætlega held ég, held allaveganna að ég sé örugglega ekki fallin! Næsta próf er á laugardaginn og svo seinasta á mán og þá er komið "frí" ;) Bara 5 dagar eftir í helvíti!

Ætla einmitt á mánudaginn að skella mér í dekur, finnst ég algerlega eiga það skilið! Fer í fótsnyrtingu, vax, andlitsbað og plokkun og litun :) Svo á þriðjudagskvöldið er klipping svo ég verð svaka skvíza ;)

Svo á þriðjudaginn er það náttla nýja vinnan.... hlakka svaka til að byrja :)

Júróvisjón á fimmtudaginn! Ætla leyfa mér að vera nokkuð svartsýn og segja að við komumst ekki áfram! Nokkuð viss um að við ættum bara að fara að hætta að taka þátt í júróvisjón... við erum bara tæníj lítið land útíj rassgati sem enginn vill styðja... þar sem þetta er náttla ekki lengur svpurning um söng eða lag! Það er bara alveg þannig!

Stend samt ennþá í þeirri meiningu að ef við ætlum að taka þátt að þá eigum við að senda Leoncie og Geir Ólafs sem dúett ;)

Held ég ætti að fara að koma mér í að læra því það er ekki alveg jafn mikill tími fyrir þessi seinustu tvö eins og fyrir hin!

Good luck to me! ;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 18:29:00 / folih

hollywood

jæja... mér heyrist það á þessum HEILU TVEIM sem kommentuðu hjá mér að þessi breyting á síðunni hafi ekki verið nógu góð! vonandi sættið þið ykkur við þessa breytingu... þó síðan sé ennþá svört þá er MY ONE AND ONLY HERO kominn líka og fylgist með að allt fari rétt og fallega fram á síðunni... :P

annars er ég búin með 2 próf af 5 og gengu þau bara vel held ég! held ég sé allaveganna örugglega ekki fallin :) næsta próf er svo ekki fyrr en eftir viku þannig ég er lögleg að blogga ;)

soo er ég náttla búnað verað djamma... ekki frásögu færandi það ;) á laugardaginn var ammlispartýj hjá ellu og birgittu, heima hjá hildi og þemað var hollywood! váá hvað þetta var algjör snilld!! Ég, anna og mæja mættum sem þríeykið fræga; paris hilton, nichole richie og lindsay lohan og ég er ekki frá því að við höfum bara verið með þeim flottustu þarna... og náðum þeim svona líka vel eins og sést hér ;)

\

Soo á mánudaginn var árshátíð hjá bónus! Og auðvitað mætti mín á staðinn þó ég sé hætt! Byrjaði í partýj hjá bigga (björtustu von bónus! :)) þar sem stemmningin var gífurleg ;) á árshátíðinni sjálfri var mikið stuð og mikið drukkin og endaði á því að ég var drifin heim af ellu og rétt dreif uppíj rúm áður en ég drapst!! :P drakk kannski aðeins of mikið þetta kvöld :S

Haldiði ekki að mín sé bara búnað splæsa á sig ferð til köben! :) Ég og anna ætlum að skella okkur í vikuferð 24. september og mæja og sunna ætla að koma og joina okkur í 5 daga! úff... það verður stuð! mikið verslað og mikið djammað :) styttist í að mahr geti farið að telja niður ;)

en well... ég ætla að fara að finna eikkurn að leika við mig í kvöld... nenni ekki að læra!!

laiter...

paris hilton!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 16:23:35 / folih

nýtt útlit

fannst svona vera kominn tími á nýtt útlit á síðunni... eða hva?

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 11:46:07 / folih

ái

jæja... lífið gengur ennþá sinn vanagang hjá mér :) ... as in læra, læra og læra meira!

Fyrsta prófið var í gær, reikningshald, og ég er bara ekki frá því að mér hafi gengið bara nokkuð vel :) gott að byrja prófin þannig :) Næsta próf er svo 30., stærðfræðin! Vonandi rúlla ég henni upp líka, fékk allaveganna 7,7 í skyndiprófi um daginn... nokk sátt :)

talandi um 30. ;) þá er árshátíðin hjá bónus um kveldið ;) (já ég veit ég er hætt en ég ætla samt að mæta!!) Og þá verður sko hrunið í það og rúllað heima á eyrnasneplunum einhverntímann daginn eftir ;) Rósa þykist ætla að drekka minna en í fyrra... hlakka til að sjá það gerast ;) Fyrirpartýj hjá bigga :) ... og kannski hjá kiddu líka :) Ohh ég hlakka svo til að detta almennilega í það... komnar alveg rúmar tvær viku síðan síðast :P

Svo á laugardaginn er hollywood partýj hjá hildi til heiðurs afmælisbarnanna, ellu og birgittu! Hvaða hollywood stjarna get ég verið ? hugmyndir vel þegnar.... Held samt að ég verði edrú því ég þarf að vera hress á sunnudaginn og læra! :S En ég var beðin um að redda einhverjum foluhm í partýjið... svo let me know! (sunna... þú lánar mér kannski eitthvað af þessum McSteamy-um sem þú ert með á færibandi ;))

Festist í bakinu í gær :S get varla hreyft mig! Óska pent eftir nuddi áður en ég dey algerlega!!

En well ég ætla að reyna að gera eitthvað... þó mér líði nú eins og ég sé þroskaheft!!

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 15:08:57 / folih

.

Ég er búnað komast að því að mig langar of mikið í heimsreisu. Langar að fara þegar ég er búin með BS áður en ég tek masterinn. Var búið að detta það í hug að fara í lok árs 2009 og byrja í New York yfir áramótin og skoða svo allan heiminn og enda í Englandi í 2-3 vikur með BTCV og koma heim í maí eða júní 2010. En þá þurfti móðir mín blessunin að skemma þetta plan með því að tilkynna mér það að systir mín, the one and only, á víst að fermast vorið 2010 :S Þannig ég býst við að ég þurfi að gera einhverjar breytingar á þessu plani mínu! Og svo náttla vantar mig ferðafélaga, hver er game?

Ég var nefnilega að komast yfir myndir frá Englandi, og váá hvað mig langar að fara aftur! Þetta var svooo æðislegt! Og talandi um myndir frá Englandi... ég var eins og bolti eins og þið getið séð á þessari fögru mynd!! :P Afhverju sagði enginn neitt við mig? halló fólk?!! bolti á ferð....

Svo þrái ég að eignast MINN mcdreamy (já ég búnað horfa soldið mikið á grey's ;))! Hann þarf ekki að vera eins í útliti (því þá myndi ég náttla bara stökkva á eftir pabba hennar önnu ;) ...sorrýj anna mín ;*) en hann þarf náttla að vera handsome og svo æðislega góður og bara æðislegur yfir höfuð... :) Jæja fólk, hvar finn ég minn eina sanna mcdreamy?

En þar sem ég er nú uppá bókhlöðu held ég að ég ætti að fara að lesa rekstrarhagfræði og hætta að væflast á netinu...

later ppl :*

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 13:37:58 / folih

sjóvá

ég fékk vinnuna :) *jeij*

sem þýðir að ég er officially hætt í bónus *ennþámeirajeij*


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9